Færsluflokkur: Dægurmál

Hjónaband II

  Þegar maður og kona hittast og verða ástfangin þá blossar upp mikill ástarbrími. Þetta endist vissulega mislengi en ekki varir þetta ástand endalaust. Þegar þessu sleppir þá er samt ástin eftir og hana þarf að rækta eins og pottablóm. Klippa burt dauðar greinar svo nýjar geti vaxið, vökva reglulega, þvo blöðin, skipta um mold og láta sólina skína á blómið. Þetta er líking við það sem við verðum að gera til að eignast gæfuríkt líf og vera ávallt ástfangin af maka okkar. Þegar daglega stritið hefst eftir sæluvímuna þá koma upp svo mörg mál sem hjónin þurfa að takast á við og þá kemur að ræktunarstarfinu. Þessi vinna þarf að vera á báða bóga og einstaklingarnir þurfa að mætast á miðri leið. Kærleikur og virðing er mikilvægur þáttur í heimilislífi ásamt samvinnu á öllum sviðum. Hjón þurfa að vera góðir vinir og fullkomið traust er gulls ígildi. Það traust má aldrei skemma á nokkurn hátt. Taka allar ákvarðanir saman -fjármálin og alla aðra þætti í lífinu. Þó verður hver einstaklingur að hafa ákveðið frelsi svo hann finni sig ekki þvingaðan á einhvern hátt. Allir skulu finna sig örugga og öllum á að líða vel á sínu heimili því þar á að vera griðarstaður fyrir alla fjölskyldumeðlimi og heimilisfriðinn skal enginn rjúfa. Það er auðvelt að skrifa þessar línur niður á blað en oft reynist fólki torvellt að lifa í samræmi við þær. Ef ást og virðing ríkir í hjónabandinu þá er eftirleikurinn auðveldari.

 

(Í upphafi skyldi endirinn skoða)


Eiturlyf

  Það er sorgleg staðreynd hvað eiturlyfjasjúklingum fjölgar mikið. Að ungar mæður deyi frá börnum sínum og að feður hverfi einnig frá ungum börnum yfir móðuna miklu. Hvers vegna er ekki meira gert bæði í forvörnum og hvers vegna er ekki meira gert til að búa þeim er starfrækja meðferðarstofnanir betur kleift að sinna sínu starfi. Tollgæslan á í vandræðum með að hefta innflutning á eiturlyfjum og lögregluyfirvöldum er þröngt skorinn stakkurinn fjárhagslega. Hvern þarf að undra þótt ástandið sé eins og það er. Það eru margir sem eiga um sárt að binda og ef rétt er (og hef ég ekki ástæðu til þess að efast um) að margir látist í viku hverri af of stórum skömmtum þá er illa komið fyrir okkur  í þessu svokallaða velferðarþjóðfélagi. Ég skora enn og aftur á ráðamenn að bregðast við og veita meira fjármagni í þennan málaflokk. Hvað varð um milljarðinn sem Framsóknarflokkurinn lofaði um árið?

 

(Framsókn hvað)


Hjónaband

  Hvernig geta karlmenn gert konurnar sínar ánægðar! Það geta verið óendanlega margir þættir en ég ætla að impra á nokkrum þeirra hér. Karlmaðurinn hefur hingað til verið talinn sterkara kynið en jafnframt lokaðra kynið. Þeir birgja flest inn í sér og eru oftar en ekki nógu blíðir og skilja ekki þarfir konunar fyrir rómantík og elskulegheit. Knús og ástarorð eru mikilvæg og ekki sé talað um að fá einstöku sinnum rós frá eiginmanninum. Láta konunni líða eins og hún sé sérstök með því að hæla henni og veita henni verðskuldaða viðurkenningu á því sem hún er að fást við. Að bræða hjarta hennar með óvæntum ástarfundum eða uppákomum henni til handa. Vera sterki aðilinn í hjónabandinu og taka á sig ábyrgð fjölskyldunar, verja hana af öllum mætti og virða hana fullkomlega. Láta ekkert koma í veg fyrir að eiga stund með ykkar heittelskuðu, það er ekkert mikilvægara í lífinu en hún. Að tala saman er mjög mikilvægur þáttur og þá kemur að þolinmæði mannsins því þar virðast vera ótrúlega margir í þeirri krísu að geta ekki talað saman. Ástarlífið er svo sér kapituli út af fyrir sig þar sem margt er hægt að laga og endurnýja ef fólk hugsar svolítið lengra en að fá sér "sjortara" Ég kem seinna að þeim málum. Tek það fram að aldrei er hægt að alhæfa neitt í þessum málaflokki.

 

(ást)


Fjölskyldur í þrot

  Það líður mörgum illa þessa dagana. Í Morgunblaðinu má lesa, að mikið af fólki þurfi hjálp hjá sálfræðingum vegna erfiðleika heimafyrir. Þar koma inní fjárhagslegar skuldbindingar og fleira sem er að sliga fólkið. Það má ekkert út af bregða, veikindi eða slys þá fer allt úr böndunum. Þegar svo er þá hriktir í stoðum hjónabandsins og oft er farin sú leið að skilja en þá verða börnin iðulega fyrir skaða sem illa verður bættur. Flestir leita sér hjálpar þegar allt er um seinan og skaðinn skeður. Ef við leitum skýringa þá sjáum við fljótt að efnahagsástandið hefur mikið með þetta að gera einnig að innviðir hjónabandsins eru oft ekki nógu sterkir og fólk ekki reiðubúið til að takast á við erfiðleika saman-fólk Kann ekki lengur að tala saman vegna álags. En hvernig styrkjum við innviði hjónabands! Að gefa sér tíma til að njóta góðra stunda með fjölskyldunni, tala saman um alla hluti og hafa þolinmæði til að hlusta. Að hlusta er mjög mikilvægur þáttur og samræður á milli hjóna í rólegheitum, kærleika og ást geta verið bestu stundirnar til að taka á erfiðum málum saman. Vissulega geta sálfræðingar hjálpað en ég bendi líka á útvarpstöðina Lindina sem flytur jákvæðan boðskap allan sólahringinn og þar er Hafliði  Kristinsson fjölskylduráðgjafi með þátt og tekur hann þar mörg áhugaverð málefni fyrir sem allir geta nýtt sér. Við höfum Drottinn Jesú okkur við hlið og ef við treystum honum og hans orði þá lagar hann ýmislegt. En ekki má gleyma efnahagsmálunum. Við fengum loksins að sjá einhverja aðgerðir og hækkaði krónan örlítið við það en ekki leysir þessi gjörningur nema lítinn hluta vandans og bíðum við enn eftir einhverju útspili ríkisstjórnarinnar. Það er ekki hægt að láta allt fara í hundana og horfa á andlegt og fjárhagslegt gjaldþrot fjölda fjölskyldna, því þá fer okkar annars ágæta þjóðfélag í Þrot.

 

 

(Það held ég nú)


Jet Black Joe

  Gærkveldið var sérstaklega skemmtilegt hjá mér. Ég fór á tónleika Palla Rós og Jet Black Joe sem voru frábærir. Það er gaman að sjá og heyra þessa listamenn og konur saman því fagmennskan skein úr hverju atriði. Palli og Gunnar Bjarni ná einkar vel saman eins og sást vel þetta kvöld og ekki spillti Óskar Einarsson og Gospelkórinn fyrir. Salurinn tók vel við sér þegar Palli kom á svið eftir rólega byrjun hjá tríói frá Vestmannaeyjum. Fyrst var það Gospelið og komu þar inní Gummi Jóns úr Sálinni og Hreimur inní með sitt lagið hvor.Svo var skipt um gír og föt og Jet Black Joe komu á sviðið með hressilega músík eins og þeim  einum er lagið. Það var mikill kraftur í þeim og stuðið orðið þannig að erfitt var að sitja í sætunum en þetta áttu að vera sitjandi tónleikar fyrir áheyrendur. Það fer ekki á milli mála að Páll Rósinkrans er einn okkar besti söngvari. Svo var kynnt til sögunnar Sigga Guðna og þá varð allt vitlaust með lagi Jettarana Freedom.. Hún fékk gríðalega sterk viðbrögð enda á ferðinni einstök söngkona. Ekki má gleyma Gospelkórnum og Edgari sem áttu góðar innkomur allt kvöldið. Þarna eru greinilega fagmenn á ferð. Ég þakka fyrir skemmtilegt kvöld.

Efnahagsástand.

  Hvar endar þetta allt saman. Hafa stjórnvöld engin tæki til að rétta við ástandið hér. Það er eins og enginn vilji taka neina ábyrð og menn tala um að ástandið batni á næsta ári. Allir sem skulda íbúðarlán finna vel fyrir hækkunum enda eru þær gríðalegar. Nú er nóg komið! Við viljum aðgerðir strax til að styrkja krónuna og minnka verðbólguna. Við kusum yfir okkur stjórnvöld sem við treystum til að taka réttar ákvarðanir einnig í efnahagsmálum og því er krafan sú að til aðgerða verði gripið strax. Eldsneytisverðið er orðið skelfilegt og hækkanir á vöru og þjónustu hrannast yfir okkur. Við höfum verið of værukær síðustu misseri og ár vegna þenslunnar en nú er nóg komið. Eina sem heyrist frá hinum háu herrum er að Akranesbær taki við Palenstínumönnum og miðað við það sem kom fram í Kastljósi í kvöld þá er það einræðisákvörðun bæjarstjórans og hans fylgisveina. Uppruni og hugsunarháttur þessara flóttamanna er svo gjörólíkur okkar því ættu menn að fara hægt í sakirnar. Er ekki komið nóg af útlendingum hingað í bili þrátt fyrir einhverja alþjóðasamninga.

 

(jæja)

Bros.

Gleðin er afl sem við íslendingar ættum að temja okkur í meira mæli. Það gefur lífinu gildi að brosa og ekki er vanþörf á. Nú eru tímar niðurskurðar og neikvæðni og er fólk virkilega hrætt við nánustu framtíð. Við sem bloggum bendum oftar en ekki á vandamál og óréttlæti en gleymum kannski of oft að segja frá því sem vel er gert. Gleymum heldur ekki að það er Drottinn Jesús Kristur sem vill leiða okkur áfram og ef við treystum honum þurfum við ekkert að óttast. Síðasta laugardag var ég í brúðkaupi hjá yndislegu fólki og var gleði og hamingja það eina sem sást enda nýgifta parið að hefja lífsbaráttuna sem við mörg þekkjum vel. Lífið blasir við þeim og ef bjartsýni, hamingja, ást og lífsgleði fylgja þeim er lífið framundan skemmtileg áskorun. Það getur bjargað deginum fyrir mörgum ef  almenn samskipti eru vinsamleg. Örlítið bros skaðar ekki

(Það er nú svo)


Hver á að skammast sín!

  Það er yndislegt lífið hjá fötluðum á sambýlum. Loksins núna getur þetta fólk farið í veslunarferðir og valið sér þvottavélar, brauðristar og eldavélar með meiru. Geta kannski keypt Miele í allt eldhúsið. Ríkisstjórnin er búin að gera svo góða hluti fyrir þetta fólk að það lifir í vellystingum og þá er  sjálfsagt að það kaupi það sem vantar í heimilishaldið. Þetta eru mikil öfugmæli og kannski halda sumir að þetta sé svona. Hver einstaklingur fær ca. 125,000 kr á mánuði og þarf engan reikningshaus til að sjá að þessir peningar nægja ekki til að hver einstaklingur geti lifað sómasamlegu lífi með fullri reisn. Og sjá! nú á vistfólk að taka þátt í að kaupa eldhústæki, þar fóru allar gjafirnar frá ríkisstjórninni á einu bretti. Þessi hugmynd er þvílík hneisa að menn ættu að skammast sín.

 

(og hana nú)


Bjarni Fel.

  Það yrði gaman ef leitað væri til Bjarna Fel við að lýsa leikjum í Evrópukeppninni í fótbolta. Menn minnast hans í svo mörgum leikjum og öðrum íþróttaviðburðum.Það væri missir og það myndi rýra skemmtanagildi útsendinga ef einhver annar fengi starfið. Þá er ég ekki að kasta rýrð á aðra íþróttafréttamenn. Ég skora á Sjónvarpið að bjóða Bjarna starfið.

(spark)


Hugleiðingar

  Dagarnir líða hjá einn af öðrum og eru oft eins og þokukennd ský. Tilveran er frekar grámygluleg en samt örlar á birtu. Við lifum í veröld þar sem hraðinn og miskunnarleysið ræður för og sá sem ekki stenst kröfur meirihlutans verður undir og á sér varla viðreisnar von. Niðurlægingin, vonleysið og sjálfsgagnrýnin nær yfirhöndinni og öll sund virðast lokuð og varla matarbita að fá..Allt of lítil íbúðin ber vott um erfiðleika og vonlausa baráttu. Fjölskyldan  er á barmi örvæntingar, erfiðleikar í hjónabandinu fara að gera vart við sig. Neyðin er algjör, upplausn fjölskyldunnar er yfirvofandi. Þunglyndi!En það er Drottinn Jesús sem getur leitt okkur í gegnum dimma dali. Grípum ljósið frá honum áður en það er orðið of seint. Hann segir í orði sínu "Varpið allri áhyggju ykkar yfir á mig, ég ber umhyggju fyrir yður". Það hefur orðið mörgum til farsældar að trúa á Jesú Krist og beini ég því til allra sem erfitt eiga að snúa sér til hans, sem er algóður Guð og miskunnsamur Máttur bænarinnar er mikill.

 

Með virðingu og vinsemd.

 

(yndislegt)


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband